Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

#1
Í framhaldi af góðu innleggi Tedda Benzara þá er hér tilkynnt fyrsta samkoman í haust og fyrsta "dekkjasparkarasamkoman" innanhúss í þó nokkurn tíma :lol:

Samkoma mánudaginn 30 september.
Klukkan 20:02


Staðsetning:
Staðsetningin er sú sama og á vetrarsamkomum undanfarinna ára,
Í bílakjallaranum undir Smáratorgi í Kópavogi. Innkeyrsla er í vesturenda Smáratorgs (undir Bónus og á móti Metró - sjá á meðfylgjandi mynd merkt með X) eða austurenda turnsins (vinstramegin við The Pier).

Hraðakstur og spól er að sjálfsögðu bannað :!: Ef góð mæting er og almennur áhugi verður hugsanlega rúntur í framhaldinu eða að við skellum okkur bara á kaffihús :-D

Stjórn MBKÍ


-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

#3
Vefstjórn skrifaði:Að sjálfsögðu eru allir áhugamenn um Mercedes-Benz og bíla yfirhöfuð velkomnir á samkomur MBKÍ, hvort sem þeir eiga Benz eður ei :D
Er kominn aftur á Benz svo að ég mæti á Benz í fyrsta skiptið frá því að ég mætti á ML 350 í des. 2010 :lol:

Þannig að menn geta mætt á hvaða bíl sem er :tumbsup2:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

#9
Ágætis mæting m.v. stuttan fyrirvara :mrgreen:

Ætli það hafi ekki verið um 15-20 manns í heildina sem mætti og þáðu flestir kaffi og smákökur :D

Hér eru nokkrar GSM myndir en aðstæður á staðnum bjóða ekki upp á "úrvalsmyndatöku" :lol:

Rúnar Logi Vilmundur Grétar - flottur litur á þessum :tumbsup2: Fúsi Benni Jón Ketils Jón Birgir Sveinn Gunnar Már Hallgrímur Og inn á milli má sjá glitta í strumpastrætóinn hans Hjalta :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Samkoma 30. september 2013 kl. 20:00

#10
Benni skrifaði:Ágætis mæting m.v. stuttan fyrirvara :mrgreen:

Ætli það hafi ekki verið um 15-20 manns í heildina sem mætti og þáðu flestir kaffi og smákökur :D

Hér eru nokkrar GSM myndir en aðstæður á staðnum bjóða ekki upp á "úrvalsmyndatöku" :lol:
Greinilega tekið á Samsung síma :D :twisted:
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.