om352

#1
Sælir Benz menn.
Mig langar að fletta aðeins upp í viskubrunninum hjá ykkur. Ég er með jeppa, gamlan stóran powerwagon og ég er að velta fyrir mér að setja om352 mótor í hann. Til boða er ákveðinn mótor sem ég veit ekkert hvað er gamall eða mikið ekinn, enda skiptir það kannski ekki öllu máli. Þetta er turbo laus mótor og búinn að vera ofan í chevy surburban í 20-30 ár.
Gírkassinn við hann er 4 gíra trukkakassinn sem var í surbanum, mjög líklega SM-465 og 203 millikassi. Þetta combó er búið að virka mjög vel í þessum 35 tommu surba í þessa áratugi, en núna er boddyið ónýtt af ryði og mig vantar mótor - einhvern mótor - en er að velta fyrir mér möguleikunum með þennan.

Þess má geta að ég er með annan þráð um þetta málefni á jeppaspjallinu, þar hef ég fengið jákvæð viðbrögð og góðar sögur en ég held að hér sé rétt að grúska eftir djúpum fróðleik og réttum staðreyndum :)
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=5&t=18171" onclick="window.open(this.href);return false;


Hér eru myndir af þessu

352 016 060 352 010 00 78 þarna á intake manifold

Getur einhver sagt mér meira um þennan mótor, mig vantar að lesa út úr þessum framleiðslutölum og hvað þær geyma mikið af upplýsingum.
Mig vanar líka að vita hvort ráðlegt sé að skrúfa túrbínu á þessa vél án breytinga og/eða hvort ég þurfi að setja stimpilkælingu, hversu mikið hægt er að blása inn á þetta miðað við að halda áræðanleikanum (en maxa samt afl og tork) og síðast en ekki síst hvaða túrbínu ég eigi að skrúfa þá við og hvort einhver hér á landi eigi auka bínu handa mér :)

Það sem ég er búinn að gúggla so far er bæði að það sé í fínu lagi að turbovæða og blása alveg 1-1.5bar inná og aðrir segja alls ekki setja turbo nema þetta sé original A mótor.


Kveðja, Elmar Snorrason
cron